MPM námið er á Facebook
MPM námið er á Facebook
Útskrift MPM nema 11. júní 2011

6 ECTS einingar - Kennt á 3. misseri
Fjallað um verkefnateymi og aflfræði þeirra út frá þremur ólíkum en tengdum sjónarmiðum. Í fyrsta lagi er fjallað almennt um kenningar um aflfræði hópa, svo sem um skilgreiningar á hópum og teymum, rannsóknir á teymum, tengslum einstaklings við hóp, mótun, samloðun, þróun og uppbyggingu teyma og vikið að áhrifum, valdi og árangri í hópstarfi. Í öðru lagi öðr aflfræði hópa skoðuð í gegnum vinnustofuþjálfun þar sem þátttakendur í öðlast æfingu í tjáningarhæfni, hlustun, viðbrögðum, áskorunum, hluttekningu, beinum tjáskiptum, beinskeyttri gagnrýni og hæfni til árangursríkrar þátttöku í hópum. Í þriðja lagi eru ofangreind atriði markvisst sett í samhengi við verkefnastjórnun og kynntar aðferðir sem gagnast sérstaklega við að leiða, stýra og meta verkefnastjórnunarhópa og ná heilbrigðum hámarksárangri innan þeirra.