MPM námið er á Facebook
MPM námið er á Facebook
Útskrift MPM nema 11. júní 2011

10 ECTS einingar - Kennt á 1. misseri
Til umfjöllunar eru grunnhugtök og grunnatriði verkefnastjórnunar sem faggreinar og gerð verkefnisáætlunar sem grundvöll að góðri verkefnastjórnun. Fjallað um mismunandi kostnað og fórnarkostnað og kynntar aðferðir við val verkefna. Fjallað er um greiningu á umhverfi verkefna, árangursmælikvarða og markmiðasetningu, meginrás verkefna og gerð verkáætlana í tölvu. Rætt er um stjórnskipulag, hlutverk og hlutverkaskiptingu. Nemendur öðlast skilning á hlutverki verkefnisstjórans sem framkvæmdastjóra í verkefnum og tengslum þessa hlutverks við leiðtogahlutverkið. Nemendur öðlast þekkingu á ýmsum tæknilegum hliðum þess að vera verkefnisstjóri. Fjallað er um ræs og lúkningu verkefna og um áhrifaþætti í verkefnisvinnu og hvernig meta má styrkleika og veikleika fólks í verkefnavinnu. Kennsla fer fram með fyrirlestrum og hópæfingum þar sem nemendur takast á við aðferðafræði og beita henni á raunveruleg dæmi.