MPM námið er á Facebook
MPM námið er á Facebook
Útskrift MPM nema 11. júní 2011

4 ECTS einingar - Kennt á 2. misseri
Fjallað er um fagmennsku verkefnaleiðtogans og siðfræði verkefnastjórnunar. Bent er á mikilvægi þess að skapa og viðhalda sýn í verkefnum og nota stjórnvisku, tengslanet og þekkingarstjórnun við framkvæmd þeirra. Sex mikilvæg árangurslögmál eru skoðuð og siðferðilega heildstæð verkefnastjórnun er skilgreind. Siðfræði- og stjórnunarkenningum er beitt og sýnt fram á hvernig rýni í siðferðileg álitamál innan verkefna tengist áhættumati og getur bætt ákvarðanatöku í verkefnum. Þessari heildstæðu sýn er beitt á þá meginþætti verkefnastjórnunar sem lúta að skilgreiningu, áætlun, framkvæmd, eftirliti, lúkningu og tengslum verkefnaleiðtogans við verkefnahópinn. Með því að tengja saman siðfræði og verkefnastjórnun er lagður grunnur að aukinni fagmennsku hjá verkefnaleiðtogum framtíðarinnar.