MPM námið er á Facebook
MPM námið er á Facebook
Útskrift MPM nema 11. júní 2011

6 ECTS einingar - Kennt á 3. misseri
Í námskeiðinu er áherslan á stjórnun margra verkefna, t.d. allra verkefna innan tiltekinnar skipuheildar. Þá þarf að koma upp ferlum sem skipuheildin nýtir sér í alhliða verkefnastjórnun. Ferlin þarf að þróa og bæta og meta á hverjum tíma hversu virk og viðeigandi þau eru. Þessi ferli geta snert alla þætti verkefnastjórnunar og tengst öðrum ferlum skipuheildarinnar. Fjallað verður stuttlega um áhættustjórnun, gæðastjórnun almennt og innleiðingu gæðakerfa sem verkefni. Kynntar verða helstu stjórnunaraðferðir sem byggja á gæðastjórnun og niðurstöður nokkra rannsókna á fyrirtækjum sem náð hafa afburðaárangri. Fjallað verður um gæðastjórnun í verkefnum og helstu staðla og viðmið sem varða verkefnastjórnun svo sem PMBok, ISO10006, APM en einnig vinsæla verkefnastjórnunaraðferð (Prince2). Rætt er um verkefnastofur, tilgang þeirra og útfærslur og aðferðir við innleiðingu. Að lokum verður fjallað um stefnumiðuð árangursmat (Balanced Scorecard) sem tæki til að tengja stefnumótun fyrirtækis eða stofnunar við aðgerðir, þar með talið verkefni.