MPM námið er á Facebook
MPM námið er á Facebook
Útskrift MPM nema 11. júní 2011

Verkefnastjórnun í mismunandi greinum atvinnulífsins
6 ECTS einingar - Kennt á 4. misseri
Í námskeiðinu verður sjónum beint að aðferðum til að meta stöðu verkefnastjórnunar í fyrirtækjum og stofnunum. Sérstökum sjónum verður beint að hugbúnaðariðnaði og nýjum vaxtarsprotum í aðferðafræði verkefnastjórnunar sem sprottið hafa upp í hugbúnaðariðnaði á seinni árum, t.d. svonefndar Agile aðferðir. Almennum aðferðum af þessu tagi verður beitt til að skoða útfærslu verkefnastjórnunar í ýmsum greinum atvinnulífs á Íslandi og kannað hvort greina megi sérkenni í þeirri útfærslu og mun á verkefnastjórnunarlegum þroska eftir atvinnugreinum. Til skoðunar verða nokkrar atvinnugreinar sem umsjónarkennari velur í upphafi námskeiðs.