MPM Master of Project Management


Valnámskeið



Verkefnastjórnun í alþjóðlegu menningarumhverfi
6 ECTS einingar - Kennt á 4. misseri

Viðhorf til framandi menningarheima eru skoðuð og leiðbeint um aðferðir sem nýtast í verkefnastjórnun í alþjóðlegu menningarumhverfi. Fjallað er um það sem verkefnastjóri þarf að hafa í huga þegar hann stýrir verkefnum á framandi slóð, rætt um áhrif verkefnamenningar á menningu samfélags og um það sem hafa þarf í huga þegar unnið er með fólki á framandi slóð. Vikið er að nokkrum atriðum í aðferðarfræði félagsvísinda- og mannfræða sem nýtast til að setja sig spor annarra og til að skilja fólk frá ólíkum menningarsvæðum. Þátttakendur eru leiddir inn í litríkan heim helstu trúarbragða mannkyns og helstu hugtök, tákn, siðir og venjur þeirra eru notuð sem lyklar að menningarlæsi. Þá er leitast við að greina þá i innsýn sem trúarbrögð heimsins geta veitt inn í nútíma verkefnastjórnun.