MPM námið er á Facebook
MPM námið er á Facebook
Útskrift MPM nema 11. júní 2011

6 ECTS einingar - Kennt á 2. misseri
Nemendur fá yfirsýn yfir lykilþætti upplýsingatækni í verkefnastjórnun og nokkur hjálpartæki verkefnastjórans sem nýtast honum við áætlanagerð, eftirfylgni og verkefnislok. Fjallað er um fundi sem stjórntæki, framsögn og ræðumennsku. Farið er í ýmsa fjárhagslega þætti, kostnaðararáætlanir og notkun aðferðar unnins virðis (earned value) í eftirfylgni verkefna. Nemendur læra grunnatriði í gerð kostnaðaráætlana og hvernig nota má forritið Microsoft Excel til að gera einfaldar kostnaðaráætlanir og áætla fjárstreymi í verkefnum.
Fjallað verður um hinar síbreytilegu þarfir verkefnastjórnunar hvað varðar uppplýsingatækni, notkun internetsins í verkefnum og framtíðarsýn í upplýsingatækni fyrir verkefnastjórnun. Með námskeiðinu er stefnt að því að gefa nemendum heildrænt yfirlit yfir notkun upplýsingatækni í stjórnun verkefna og hvernig best sé að hagnýta tæknina í fyrirtækjum. Farið verður ítarlega í innleiðingarþátt í áætlanagerð, framkvæmd og lúkningu með því að ræða nokkur dæmi. Sérstök áhersla verður lögð á þætti sem geta haft jákvæð áhrif á árangur í innleiðingu upplýsingatækni í verkefnum. Gefið er yfirlit yfir ýmsa þætti sem hafa með að gera hversu tilbúin fyrirtæki eru til að hagnýta sér upplýsingatækni.