MPM Master of Project Management

1.jpg

Umsóknir MPM 2011-2013

Öllum fyrirspurnum um MPM námið fyrir haust 2011 er svarað á skrifstofu Endurmenntunar HÍ í síma 525-4444

Rafræn umsókn

Umsóknareyðublað

Umsagnarblað

      Útskrift MPM nema 11. júní 2011


Umsóknir



Umsóknarfrestur er til 17. maí 2011

Hægt er að sækja um MPM námið með tvennum hætti, skriflega eða rafrænt. Skriflegum umsóknum skal skila á skrifstofu Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, Hjarðarhaga 2-6, 107 Reykjavík, merktar MPM náminu eða í afgreiðslu Endurmenntunar að Dunhaga 7. Rafræna umsókn má nálgast hér.

Umsóknareyðublað (pdf)

Umsögn (pdf)

Rafræn umsókn

Umsóknin og fylgigögn
Skoðið vel viðhengin hér á síðunni. Umsóknin skiptist í fjóra meginhluta:

  • Hin formlega umsókn (rafræn eða skrifleg).
  • Stutta greinargerð um áhuga  á náminu, markmiðið með því að fara í námið og viljann til að ljúka því. Einnig stutta umfjöllun um reynslu af þátttöku í verkefnum og verkefnastjórnun. Þessi greinargerð er höfð til viðmiðunar þegar nemendur eru valdir inn í námið.
  • Umsagnir tveggja aðila.  Umsækjendur skulu afla sér umsagna tveggja aðila (sjá skjalið Umsagnareyðublað á þesssari síðu). Umsagnaraðili skal senda umsagnir sínar beint til verkfræðideildar Háskóla Íslands, Hjarðarhaga 2-6, 107 Reykjavík, merktar MPM náminu eða til Endurmenntun HÍ að Dunhaga 7.
  • Náms- og starfsferilsskrá (CV) umsækjandans og viðeigandi prófskírteini.

 

Nánari upplýsingar veitir Kristín Birna Jónasdóttir verkefnisstjóri (kristind@hi.is)  í síma 525-5296, hún svarar praktískum spurningum um námið og fyrirkomulag þess.

Helgi Þór Ingason forstöðumaður (heling@hi.is) og Haukur Ingi Jónasson kennari (hij@hi.is) svara efnislegum spurningum um faglegt inntak námsins.

Þátttökugjald í MPM náminu er 2.200.000.- Innifalinn er kostnaður við alþjóðlega D vottun (fyrra námsár) og C eða B vottun (seinna ár) sem gefin er út af Verkefnastjórnunarfélagi Íslands og Project Management Assocition (IPMA). C eða B vottun þarf þó að ljúka á því ári sem nemandi brautskráist.

Greiðslufyrirkomulag er eftirfarandi:

  • Greiðsluseðillinn fyrri hluta staðfestingargjalds verður sendur með inntökubréfi með eindaga 18. júní kr. 85,000.- síðari hluti staðfestingargjalds kr. 150.000.-  með eindaga 11. ágúst.Næstu gjalddagar eru:
  • 19. september 2011, kr. 600.000.-
  • 23. janúar 2012, kr. 515.000.-
  • 10. september 2012, kr. 500.000.-
  • 19. janúar 2013, kr. 350.000.-

Innifalinn er kostnaður við alþjóðlega D vottun (fyrra námsár) og C eða B vottun (seinna ár) sem gefin er út af Verkefnastjórnunar-félagi Íslands og International Project Management Association (IPMA).

  • Námið er lánshæft fyrir hluta skólagjalda hjá LÍN. Nýjar úthlutunarreglur verða birtar í byrjun maí 2011.