MPM Master of Project Management

1.jpg

Umsóknir MPM 2011-2013

Öllum fyrirspurnum um MPM námið fyrir haust 2011 er svarað á skrifstofu Endurmenntunar HÍ í síma 525-4444

Rafræn umsókn

Umsóknareyðublað

Umsagnarblað

      Útskrift MPM nema 11. júní 2011


Um MPM


Hvað er MPM?
  • MPM stendur fyrir Master of Project Management eða
    meistaranám í verkefnastjórnun.
  • Mjög hagnýtt stjórnunarnám samhliða starfi. 
  • Nemendur hljóta alþjóðlega vottun í verkefnastjórnun sem
    gefin er út af Verkefnastjórnunarfélagi Íslands í umboði
    alþjóðasamtaka verkefnastjórnunarfélaga (IPMA).
Markmið MPM námsins: 

 Að mennta og þjálfa nemendur í að takast á við margvísleg
viðfangsefni með aðferðum verkefnastjórnunar.

Að mennta og þjálfa nemendur í sjálfstjórn, samskiptum,
forystu, teymisvinnu og eflingu liðsheilda.

  • Að mennta og þjálfa nemendur til leiðandi starfa
    á fjölbreytilegum starfsvettvangi á Íslandi og erlendis.
  • Að undirbúa nemendur undir alþjóðlegar vottanir (IPMA)
    á þekkingu sinni, reynslu og færni.
  • Að viðhalda og efla þekkingu á verkefnastjórnun
    og skapa nýja þekkingu í sviðinu.
  • Að samþætta innsýn úr hug-, félags-, viðskipta-
    og verkvísindum með hagnýtum hætti.
  • Að þjálfa framtíðarleiðtoga sem eru færir um
    að gera það sem gera þarf.
Fyrir hverja:
  • Meistaranám í verkefnastjórnun er opið þeim sem hafa lokið BA/BS/B.ed. eða sambærilegu námi.
  • Nemendur hafi minnst 3 ára reynslu úr atvinnulífinu og æskilegt er að þeir hafi umtalsverða reynslu af því að starfa í verkefnum. 
Kostnaður: 

Þátttökugjald í MPM náminu á tímabilinu 2009-2011 er kr. 2.200.000-
Greiðslufyrirkomulag er eftirfarandi: Greiðsluseðillinn fyrri hluta staðfestingargjalds verður sendur með inntökubréfi með eindaga 18. júní kr. 85,000.- síðari hluti staðfestingargjalds kr. 150.000.-  með eindaga 11. ágúst.
Greiðsla í upphafi 1. misseris kr. 600.000.- er með gjalddaga 17.sept. 2010
Greiðsla í upphafi 2. misseris kr. 515.000.- er með gjalddaga 21.jan 2011
Greiðsla í upphafi 3. misseris kr. 500.000.- með gjalddaga 8 sept 2011
Greiðsla í upphafi 4. misseris kr. 350.000.- með gjalddaga 19.jan 2012

  • Innifalinn er kostnaður við alþjóðlega D vottun (fyrra námsár) og C eða B vottun (seinna ár) sem gefin er út af Verkefnastjórnunarfélagi Íslands og International Project Management Association (IPMA).
  • LÍN veitir lán fyrir hluta skólagjölda. Nánari upplýsingar á www.lin.is