MPM Master of Project Management


Tryggvi Sigurbjarnarson



Tryggvi er ráðgjafarverkfræðingur. Hann lauk námi í
rafmagnsverkfræði við Tækniháskólann í Dresden 1961 (Dipl. Ing.) og starfaði að
sérfræði- og stjórnunarstörfum hjá raforkuiðnaðnum á Íslandi 1961-1975, síðast
hjá Landsvirkjun. Tryggvi var meðeigandi, yfirverkfræðingur og síðar
framkvæmdastjóri verkfræðistofunnar Rafteikning hf. 1975-1989. Hann hefur frá
1989 starfað við rannsóknir, ráðgjöf og kennslu í verkefnastjórnun. Tryggvi
kenndi verkefnastjórnun við Háskóla Íslands 1987-1999 og hefur haldið námskeið
hjá Endurmenntun HÍ frá árinu 1985. Tryggvi hefur sótt fjölda námskeiða í
verkefnastjórnun hjá Morten Fangel og fleiri leiðandi fræðimönnum.