MPM námið er á Facebook
MPM námið er á Facebook
Útskrift MPM nema 11. júní 2011

Þröstur Guðmundsson er véla- og iðnaðarverkfræðingur. Hann lauk doktorsprófi frá University of Nottingham í Englandi 1996, MSc prófi í vélaverkfræði frá University of Colorado í Boulder USA 1992 og CS prófi í véla- og
iðnaðarverkfræði frá HÍ 1989.
Þröstur vann að rannsóknum, þróunarstarfi og framleiðsluráðgjöf fyrir steypuskála álvera hjá Alusuisse Technology Center í Chippis í Sviss frá 1996 - 1999. Þröstur hefur verið starfsmaður Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen frá 2001 og einn af eigendum sömu stofu frá 2003. Hann starfaði við hönnun Kárahnjúkavirkjunar frá 2000 - 2003 en hefur verið verkefnisstjóri við stækkun álvers Norðuráls á Grundartanga frá 2004.Þar hefur hann meðal annars gengt hlutverki hönnunarstjóra stækkunarinnar ásamt verkefnisstjórnun og umsjón vegna stækkunar steypuskála og fleiri framleiðslusviða. Þröstur er vottaður verkefnisstjóri (Certified Senior Project Manager).