MPM Master of Project Management


Sylvía Kristín Ólafsdóttir



Sylvía Kristín Ólafsdóttir er með BSc próf í iðnaðarverkfræði. Í lok árs mun
hún útskrifast með MSc í aðgerðagreiningu (e. Operational Research) frá
London School of Economics and Political Science. Sylvía vann
meistarasverkefni sitt í samvinnu við WRc Plc (fyrrum e. Water Research
Centre).

Sylvía hefur starfað fyrir Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins meðal
annars við árangursmælingar, innleiðingu gæðastýringar og
tölfræðirannsóknir. Hún starfaði einnig sem ráðgjafi starfshóps Almannavarna
höfuðborgarsvæðisins og hafði m.a. umsjón með áframhaldandi vinnu áhættumats
sem fólst í vali og hönnun björgunartilfella fyrir svæðið. Þar að auki hefur
hún unnið sem ráðgjafi fyrir ýmis fyrirtæki og stofnanir. Auk þess að
aðstoða við kennslu í MPM náminu sinnir hún stundakennslu í rekstrarfræði
við verkfræðideild Háskóla Íslands.