MPM Master of Project Management


Stjórnun, ráðgjöf og þróun skipulagsheilda



6 ECTS einingar - Kennt á 3. misseri

Fjallað er um kenningar í skipulagsheildar-, stjórnunar- og ráðgjafafræðum og vikið að sögu þeirra og þróun. Sjónum er beint að hlutverkum ráðgjafans og verkefnastjórans innan skipulagsheilda og þróun skipulagsheilda sem fagsvið er skilgreint. Þátttakendur kynnast aðferðum sem beitt er í ráðgjafaverkefnum sem lúta að breytingastjórnun og þróun smárra sem stórra skipulagsheilda. Námskeiðið hjálpar nemendum að skilja hugtök, líkön, kenningar, og tækni við að skipuleggja inngrip, innleiðingu, breytingar og þróun innan skipulagsheilda og leiðir til að meta árangur slíkra verkefna. Nemendur þróa með sér aðferðir og hæfni til að takast á við fjölþætt ráðgjafa- og verkefnisstjórahlutverk innan skipulagsheilda og tileinka sér markvissar aðferðir til að innleiða þróunarverkefni sem miða að þroskun skipulagsheilda.