MPM námið er á Facebook
MPM námið er á Facebook
Útskrift MPM nema 11. júní 2011

Steven D. Eppinger er konrektor og prófessor við Sloan
viðskiptadeild MIT tækniháskólans í Boston. Hann lauk S.B., S.M. og Sc.D.
gráðum frá vélaverkfræðideild MIT og hefur starfað við skólann frá 1988.
Áherslusvið Eppingers hefur verið vöruþróun og hefur hann
hannað og kennt vinsælt vöruþróunarnámskeið sem nemendur úr viðskiptafræðum,
verkfræði og iðnhönnunarfræðum sækja. Eppinger kennir einnig í framhaldsnámi
MIT í viðskiptafræðum fyrir fólk úr atvinnulífinu og fjallar í kennslu sinni um
vöruþróun og stjórnun og samhæfingu flókinna verkefna.
Prófessor Eppinger er annar tveggja höfunda bókarinnar
"Product Design and Development" sem McGraw-Hill gefur út. Bókin
hefur verið gefin út í þrígang og er notuð við kennslu í hundruðum háskóla um
heim allan. Rannsóknir Eppingers snúast um að bæta flókin vöruþróunarferli til
að stytta þróunartímann. Hann hefur verið í fararbroddi í að þróa "Design
Structure Matrix" aðferðina við að stýra flókinni kerfishönnun. Hann er
höfundur meira en fimmtíu vísindagreina í ritrýndum tímaritum og ráðstefnum.
Eppinger hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir störf sín, m.a. fyrir
kennslu, fyrir frumkvöðlastarf og í tvígang hefur hann fengið ASME verðlaun
fyrir bestu greinar á sviði hönnunar.