MPM námið er á Facebook
MPM námið er á Facebook
Útskrift MPM nema 11. júní 2011

6 ECTS einingar - Kennt á 2. misseri
Helstu aðferðir í samningatækni, deilu- og áfallastjórnun erum kynntar og sýnt er fram á mikilvægi þess verkefnastjórar tileinki sér haldbæra afstöðu og færni í að beita þekktum aðferðum á þessum sviðum. Rætt er um uppruna samningartækninnar, tengsl hennar við hagfræði, leikjafræði, hugmyndir um hámörkum og sýnt fram á hvernig líta má á samningaviðræður, deilu- og áfallastjórnun í ljósi verkefnastjórnunar. Þá er því lýst hvernig vinna má að flóknum samningum og sú aðferð er sett í samhengi samninga af ýmsu tagi. Sjónum verður m.a. beint að innkaupum, lögum og reglum sem gilda um innkaup, stjórnun samninga og helstu samningsskjöl og aðferðir við innkaup.
Hluti námskeiðsins er krefjandi vinnustofa þar sem kennt er með raunhæfum æfingum sem miða að því að auka á skilvirkan hátt samninga-, deilu- og áfallastjórnunarfærni þátttakenda.