MPM Master of Project Management


Sæunn Kjartansdóttir



Sæunn Kjartansdóttir lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Tjörnina
árið 1976, hjúkrunarfræðiprófi frá Hjúkrunarskóla Íslands árið 1979 og
réttindaprófi í sálgreiningu frá Arbours Association í London árið 1992.
Sæunn starfaði sem hjúkrunarfræðingur á Borgarspítala og geðdeildum
Kleppsspítala og Landspítala á árunum 1979-1987 og sem hjúkrunarfræðingur og sálgreinir á dagdeild geðdeildar Sjúkrahúss Reykjavíkur á tímabilinu 1992-2000. Hún starfaði sem ráðgjafi á neyðarmóttöku Sjúkrahúss Reykjavíkur 1993-1998 og síðar sem handleiðari fyrir hjúkrunarfræðinga og lækna neyðarmóttökunnar. Sæunn hefur starfað sem sálgreinir á eigin meðferðarstofu frá árinu 1992.

Önnur störf hennar eru: Formaður hjúkrunarráðs Sjúkrahúss Reykjavíkur 1997 – 1999 og stundakennari við Háskóla Íslands frá 1994. Hún hefur ritað bókin: Hvað gengur fólki til? Leit sálgreiningar að skilningi, sem gefin var út af Máli og menningi árið 1999. Hún hefur jafnframt haldið fjölda fyrirlestra og ritað margvíslegar greinar í dagblöðum og tímaritum um sýn sálgreiningar á hegðun og líðan fólks.