MPM námið er á Facebook
MPM námið er á Facebook
Útskrift MPM nema 11. júní 2011

Runólfur Smári vann hjá Eimskipafélaginu á árunum 1979 til
1982 og aftur 1986 til 1987. Hann varð lektor við H.Í. 1993, dósent 1996 og
prófessor 2005.
Runólfur Smári hefur sinnt margvíslegum ráðgjafastörfum
fyrir opinbera aðila og einkafyrirtæki, einkum á sviði stefnumótunar. Hann hefur
m.a. unnið slík störf fyrir Vestmannaeyjabæ, Þjóðminjasafn Íslands, Bergen
Museum og RARIK. Innan háskólasamfélagsins hefur Runólfur gegnt ýmsum
stjórnunarstörfum, m.a. verið umsjónarmaður stjórnunarsviðs, formaður
vísindanefndar viðskiptaskorar og fyrsti umsjónarmaður M.S. náms í
viðskiptafræði. Hann er formaður stjórnar Viðskiptafræðistofnunar og er nú
fyrsti forstöðumaður MBA námsins. Hann hefur ritað fræðigreinar um sérsvið sín
í erlend tímarit, skrifað smárit og ritstýrt fjölda smárita og bóka sem ritstjóri
Ritraðar Viðskiptafræðistofnunar og Bókaklúbbs atvinnulífsins. Kennslugreinar
hans eru einkum stjórnun og stefnumótun.
Tölvupóstfang: rsmari@hi.is
Sími: 525-4557/897-1914