Umsóknir MPM 2011-2013
Öllum fyrirspurnum um MPM námið fyrir haust 2011 er svarað á skrifstofu Endurmenntunar HÍ í síma 525-4444

MPM námið er á Facebook
Útskrift MPM nema 11. júní 2011

Umsóknin skiptist í fjóra meginhluta:
1. Hin formlega umsókn (rafræn umsókn).
2. Greinargerð þar sem óskað eftir að umsækjendur skrifi stutta greinargerð um áhuga sinn á náminu, markmiðið með því að fara í námið og viljann til að ljúka því. Einnig stuttri umfjöllun um reynslu af þátttöku í verkefnum og verkefnastjórnun. Þessi greinargerð er höfð til viðmiðunar þegar nemendur eru valdir inn í námið.
3. Umsagnir tveggja aðila. Umsækjendur skulu afla sér umsagna tveggja aðila (sjá skjalið Umsagnareyðublað). Umsagnaraðili skal senda umsagnir sínar beint til verkfræðideildar Háskóla Íslands, Hjarðarhaga 2-6, 107 Reykjavík, merktar MPM náminu eða í Endurmenntun HÍ að Dunhaga 7, 107 Reykjavík
4. Náms- og starfsferilsskrá (CV) umsækjandans og viðeigandi prófskírteini.
Athugið - til að umsóknin sé gild þurfa öll ofangreind gögn að fylgja umsókninni.