MPM Master of Project Management

1.jpg

Umsóknir MPM 2011-2013

Öllum fyrirspurnum um MPM námið fyrir haust 2011 er svarað á skrifstofu Endurmenntunar HÍ í síma 525-4444

Rafræn umsókn

Umsóknareyðublað

Umsagnarblað

      Útskrift MPM nema 11. júní 2011


Ráðstefnan "Vor í íslenskri verkefnastjórnun" Hótel Sögu 20. maí kl. 13:00-16:20



Föstudaginn 20. maí stendur MPM námið fyrir ráðstefnunni "Vor í
íslenskri verkefnastjórn". Ráðstefnan fer fram á Hótel Sögu frá klukkan
13:00-16:20.

Á fjórða og síðasta misseri MPM náms vinna nemendur að lokaverkefnum
undir handleiðslu fræðimanna innan og utan háskólans. Verkefnin fela í
sér úttektir á afmörkuðum sviðum sem nemendur hafa áhuga þar sem beitt
er viðurkenndum rannsóknaraðferðum, megindlegum eða eigindlegum.

Ráðstefnan "Vor í íslenskri verkefnastjórnun" er vettvangur nemenda til
að kynna niðurstöður sínar. Hún endurspeglar þann metnað nemenda og MPM
námsins að taka þátt í uppbyggingu þekkingar í verkefnastjórnun.

Alls verða 26 verkefni kynnt á ráðstefnunni sem fer fram í þremur
samhliða straumum. Ráðstefnan er öllum opin og án aðgangseyris. Nánari
dagskrá má finna hér.