MPM Master of Project Management


Páll Jensson



Páll er prófessor í iðnaðarverkfræði við Verkfræði- og
náttúruvísindasvið Háskóla Íslands. Hann lauk MSc prófi í iðnaðarverkfræði frá
Tækniháskólanum í Danmörku frá árið 1972 og PhD-gráðu í aðgerðarannsóknum frá
sama skóla árið 1975. Hann starfað hjá IBM á Íslandi 1975-77 og var
forstöðumaður Reiknistofnunar HÍ 1977-87 áður en hann varð prófessor. Páll
hefur stundað kennslu og rannsóknir í iðnaðarverkfræði, einkum á sviði
aðgerðarannsókna og hagnýtingu þeirra í íslensku atvinnulífi, m.a. í sjávarútvegi.
Hann hefur verið ráðgjafi fjölmargra fyrirtækja m.a. við arðsemimat verkefna og
verið virkur í nýsköpunarstarfi með ýmsum 
fyrirtækjum svo sem Marel. Páll hefur sinnt margvíslegum stjórnunar- og
trúnaðarstöðum og stjórnað fjölda rannsókna- og þróunarverkefna, og verið sjö
sinnum gestaprófessor við erlenda háskóla.