MPM Master of Project Management

1.jpg

Umsóknir MPM 2011-2013

Öllum fyrirspurnum um MPM námið fyrir haust 2011 er svarað á skrifstofu Endurmenntunar HÍ í síma 525-4444

Rafræn umsókn

Umsóknareyðublað

Umsagnarblað

      Útskrift MPM nema 11. júní 2011


Náms- og starfsráðgjöf



Hlutverk námsráðgjafans er að veita nemendum og námshópum leiðsögn og ráðgjöf varðandi bætt vinnubrögð í námi og fleira er lýtur að námstækni, tímastjórnun, um samskipti og skipulagningu í hópastarfi og stjórnun prófkvíða. Hjá námsráðgjafa er hægt að fá endurgjöf á vangaveltur sínar og frekari upplýsingar um námsmöguleika, forkröfur, uppbyggingu náms, væntanlegan afrakstur þess o.fl. Vel ígrundað námsval sem byggir á áhuga, réttum upplýsingum og skilningi getur margfaldað ávinning námsmannsins af námi sínu.

Þjónusta námsráðgjafa
•    Ráðgjöf vegna námsvals
•    Námstækninámskeið
•    Fyrirlestur um próftækni, prófundirbúning og stjórnun prófkvíða
•    Aðstoð við nemendur með sértæka námserfileika
•    Ráðgjöf um tímastjórnun og skipulagningu

Skrifstofa og viðtalstímar
Skrifstofa námsráðgjafa er í Endurmenntun HÍ að Dunhaga 7 og er opin frá klukkan 9:00-17:00 alla virka daga. Nemendur geta bókað viðtal eftir samkomulagi í síma 525-5296 eða sent inn fyrirspurnir á netfangið kristind@hi.is.