MPM Master of Project Management


Morten Fangel



Morten Fangel er MSc í byggingaverkfræði, Dipl. Econ. í
stjórnun og PhD í iðnaðarverkfræði. Hann rekur alþjóðlegt ráðgjafarfyrirtæki á
sviði verkefnastjórnunar, Fangel Consulting. Fyrirtækið hefur hann rekið síðan
1975 og sinnt á því tímabili margvíslegum verkefnum fyrir fyrirtæki og
stofnanir, í Danmörku og öðrum löndum. Sérsvið hans er þjálfun í
verkefnastjórnun og gangsetning verkefna og á þessum sviðum hefur hann þróað
aðferðir sem náð hafa útbreiðslu, m.a. á Íslandi. Á síðustu árum hefur hann
stýrt vinnu við að þróa norrænan þekkingargrunn í verkefnastjórnun.

 

Morten Fangel hefur skrifað fjölda bóka og tímaritsgreina um
verkefnastjórnun á dönsku og ensku. Hann hefur verið formaður dönsku verkefnastjórnunarsamtakanna
og hann er heiðursfélagi í Verkefnastjórnunarfélagi Íslands. Hann hefur verið
virkur í IPMA - alþjóðasamtökum verkefnastjórnunarfélaga og var m.a. formaður
þeirra samtaka 1991 - 1994 en í dag stýrir hann nefnd IPMA sem undirbýr og heldur
alþjóðleg námskeið í verkefnastjórnun.