MPM Master of Project Management


Kenneth K. Humphreys



Dr. Kenneth K. Humphreys verkfræðingur með aldarfjórðungs
starfsreynslu úr iðnaði og háskólum. Hann var sérfræðingur hjá United States
Steel Corporation, aðstoðarforstjóri Coal Research Bureau í Vestur Virginíu og
prófessor við Háskóla Vestur Virginíu.

Dr. Humphreys starfar sem ráðgafarverkfræðingur og
alþjóðlegur fyrirlesari. Hann var forseti alþjóðasamtaka kostnaðarverkfræðinga
(AACE – Association for the Advancement of Cost Engineering) á árunum
1971-1992. Hann hefur skrifað yfir 250 fræðilegar greinar og bækur um
kostnaðarverkfræði og er alþjóðlega viðurkenndur sem einn helsti sérfræðingur
heims á þessu sviði.