MPM Master of Project Management


Jim McLain



Jim MacLain hefur starfað hjá Bechtel um langt skeið og stjórnað
fjöldamörgum verkefnum á vegum fyrirtækisins um heim allan. Nefna má uppbyggingu
málmvinnslu í Chile, byggingu kjarnorkuvers í Indlandi og stálvers í Frakklandi
en á ferli sínum hefur hann einnig stýrt verkefnum í Kanada, Indónesíu, Kína og
Ástralíu, svo dæmi séu tekin. Á síðustu árum hefur McLain starfað við þjálfun
og kennslu verkefnisstjóra Bechtel í aðalstöðvum fyrirtækisins í Kaliforníu og
m.a. byggt upp aðferðir og ferli sem notuð eru í verkefnastjórnun fyrirtækisins
um heim allan.

Jim McLain lét af störfum hjá Bechtel í ársbyrjun 2006 eftir
40 ára störf fyrir fyrirtækið. Þó hann sé þar með kominn á eftirlaun er hann
enn eftirsóttur fyrirlesari og er m.a. sérstakur ráðgjafi Bechtel á sviði
verkefnastjórnunar.