MPM Master of Project Management


Háþróuð verkefnastjórnun



4 ECTS einingar - Kennt á 4. misseri

Áherslan í þessu námskeiði er einkum á ýmsar þróaðar aðferðir í aðferðafræði verkefnastjórnunar sem hafa verið þróaðar á seinni árum, þ.e. Design Structure Matrix og Critical chain. Þetta eru aðferðir sem notaðar eru í áætlanagerð og eftirfylgni m.a. með stórum og flóknum vöruþróunarverkefnum.
Stór þáttur í námskeiðinu er vinna við viðamikið sjálfsmat sem byggist á alþjóðlegum viðmiðum sem upprunnin eru frá danska verkefnastjórnunarfélaginu og grundvallast á þróaðri sýn á hlutverk og færniþætti nútíma verkefnastjóra. Í námskeiðinu verður og unnið að undirbúningi nemenda fyrir að gangast undir vottun verkefnastjóra á C eða B stigi.