MPM námið er á Facebook
MPM námið er á Facebook
Útskrift MPM nema 11. júní 2011

Gunnar Stefánsson er vélaverkfræðingur og tölvunarfræðingur
frá Háskóla Íslands, með meistarapróf í iðnaðarverkfræði frá Chalmers
háskólanum í Gautaborg og doktorspróf frá sama skóla á sviði vörustjórnunar og
notkun upplýsingatækni í rekstri fyrirtækja.
Áður en Gunnar hélt ytra í meistara- og doktorsnám vann hann
um árabil á ráðgjafastofu og síðar hjá íslensku iðnaðarfyrirtæki sem
framleiðslustjóri og gæðastjóri.
Við Chalmers háskólann í Gautaborg hefur Gunnar sinnt bæði
kennslu og rannsóknum í um áratug og verið til langs tíma deildarstjóri
meistaranáms á sviði notkunar upplýsingartækni í vörustjórnun sem hann byggði
upp frá grunni. Gunnar er nýlega kominn til starfa hjá Háskóla Íslands sem
dósent við véla- og iðnaðarverkfræðiskor. Hann er einnig í hlutastöðu hjá
Chalmers háskólanum í Gautaborg en sinnir einnig rannsóknum í gegnum gestastöðu
hjá Northwestern háskólanum í Chicago og kennslu hjá Shanghai Maritime
háskólanum í Shanghai.
Gunnar hefur unnið að mörgum kennslu- og ráðgjafaverkefnum á
sviði gæðamála í framleiðslu, vörustjórnun, notkun upplýsingakerfa og
betrumbóta á ferlum með bæði innlendum og erlendum fyrirtækjum á borð við Alfa
Laval, Volvo, Schenker, Boeing, ofl. Gunnar hefur eining sinnt mörgum
alþjóðlegum rannsóknarverkefnum og verið fulltrúi Svíþjóðar í mörgum stórum
verkefnum á sviði flutninga- og vörustjórnunar fyrir Evrópubandalagið.