MPM Master of Project Management


Darren Dalcher



Dr. Darren Dalcher er prófessor í verkefnastjórnun í
hugbúnaðarverkefnum við Middlesex háskóla í Englandi og stýrir rannsóknastöð á
þeim sviðum við skólann.  Hann er
stofnandi og framkvæmdastjóri National Center for Project Management í
Englandi. Hann lauk PhD prófi í hugbúnaðarverkfræði frá Kings College í London.
Prof. Dalcher situr í mörgum alþjóðlegum rannsóknahópum, stýrihópum og
ritnefndum. Hann hefur ritað meira en 150 greinar og bókarkafla um
verkefnastjórnun og hugbúnaðarverkfræði. Hann er aðalritstjóri tímaritsins
Software Process Improvement and Practice og faglegur ritstjóri tímaritsins
Technology Analysis and Strategic Management.