MPM Master of Project Management


Benedikt Árnason



Benedikt er hagfræðingur að mennt. Hann lauk prófi í
þjóðhagfræði frá Háskóla Íslands árið 1990 og M.A. prófi í hagfræði og M.B.A.
prófi í fjármálum frá University of Toronto í Kanada árin 1991 og 1993.
Benedikt starfaði sem skrifstofustjóri fjármagnsmarkaðar og síðar staðgengill
ráðuneytisstjóra í iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti frá 1995 til 2005.
Aðalstarfssvið Benedikts í ráðuneytinu var fjármálamarkaður og þær umfangsmiklu
breytingar sem sá markaður gekk í gegnum á þessum árum. Frá árinu 2005 hefur
Benedikt starfað sem einn af aðstoðarframkvæmdastjórum Norræna
fjárfestingarbankans í Helsinki í Finnlandi.

Netfang: benedikt.arnason@nib.int