MPM Master of Project Management


Arðsemi og fjármögnun verkefna



6 ECTS einingar - Kennt á 3. misseri

Til umfjöllunar eru grunnatriði í fjármálum verkefna með megin áherslu á arðsemimat sem er kjarninn í hagrænu mati á verkefnum (og í gerð viðskiptaáætlana). Meðal þess sem fjallað verður um eru mælikvarðar á arðsemi verkefna, áætlun um fjárstreymi, ársreikningar fyrirtækja, rekstrarreikningur, efnahagsreikningur og bókhaldslegar kennitölur. Í námskeiðinu byggja nemendur sjálfir upp Excel reiknilíkan með mælikvörðum á arðsemi. Kennsla fer aðallega fram með tölvuæfingum og hópvinnu þar sem nemendur æfa aðferðafræði arðsemimats,  næmnigreiningu og áhættumat og beitingu þessara atriða á raunveruleg viðfangsefni. Einnig er fjallað um fjármögnun verkefna með áherslu á að veita nemendum innsýn inn í þá aðferðafræði sem bankar nota til að meta  verkefni og hvaða hlutverki bankar gegna í fjármögnun þeirra.